8. flokkur Vals

Knattspyrnufélagið Valur

24.01.2012 15:19:50 / Ragga

Breyting á sunnudagstímum.

Nú er komið að því að við ætlum að færa sunnudagstímana okkar. Vegna fjölgunnar í flokknum höfum við einnig ákveðið að skipta þeim upp á sunnudögum í yngra og eldra ár.

Þannig að sunnudagarnir eru eftirfarandi:
Drengir fæddir 2007 æfing 10:00 -10:50
Drengir fæddir 2006 æfing 10:50 - 11:40

Þetta hefur verið svolítið í lausu lofti þar sem að tímarnir röðuðust því miður þannig niður að m.fl.kv (flokkurinn minn) fékk tíma á nákvæmlega sama tíma og 8.fl, bæði á sunnudögum og þriðjudögum. Við höfum verið að vinna að því lengi að reyna að finna lausn á þessum vanda og höfum fundið þessa lausn með sunnudagana.

Það hefur því miður ekki verið hægt að færa þriðjudagsæfingarnar þar sem enginn annar tími er laus. 
En um leið og hægt verður að æfa á gervigrasinu okkar á Hlíðarenda breytast æfingatímarnir hjá mér og þá verð ég alla þriðjudaga. Þangað til verður Kristín Jóns aðalþjálfarinn á þriðjudögum. En hún er þjálfari 8.fl kvenna. 
Margrét heldur áfram og Kolbeinn (Kolli) kemur inn í stað Hólmfríðar. 
Svo að á öllum æfingum verða 3 þjálfarar. Bæði sunnudagsæfingum og þriðjudagsæfingum.

Við höldum því sama tímanum þriðjudaga og þá mæta bæði yngra og eldra ár saman en á móti höfum við aðgang að tveimur völlum.

Ég vil einnig biðja alla foreldra sem hafa ekki fengið póst frá mér um að senda mér línu á kristinyr21@gmail.com til þess að ég fái póstfangið ykkar!

Bestu kveðjur
Kristín Ýr

» 0 hafa sagt sína skoðun

12.12.2011 22:24:16 / Ragga

Jólafrí

Hæ hæ,

nú er komið að smá jólafríi hjá okkur! Við æfum á morgun þriðjudag og svo förum við í frí. Næsta æfing eftir morgundaginn er þriðjudaginn 3.jan í sal 2.

Ég (Kristín Ýr) verð því miður ekki með æfinguna á morgun þar sem ég verð erlendis en Margrét, Kristín Jóns og Hólmfríður mæta og við sjáumst bara 3.janúar!

Hafið það gott í fríinu og Gleðileg jól! :)

Bestu kveðjur
Kristín Ýr

» 0 hafa sagt sína skoðun

22.10.2011 22:32:01 / Ragga

Æfing á morgun sunnudag 23 okt. fellur niður!

Þar sem húsið er allt undirlagt af samfylkingarfólki verður húsið lokað á morgun. Æfingin fellur því niður.

» 0 hafa sagt sína skoðun

05.10.2011 15:00:20 / Ragga

þjálfaraskipti

sælir foreldrar,

vildi bara þakka ykkur fyrir samstarfið með 8 flokk. Ég læt núna af stöfum með 8. flokk og þjálfa því ekki meira. Verið er að finna nýjan aðalþjálfara en þangað til verða Margrét sif, Villimey og Kristín með flokkinn.

Einnig vill ég minna á leik mfl. kv Vals sem er við Glasgow city á vodafonevelli á morgun Fimmtudag kl 16.  Vill hvetja ykkur öll til að mæta ef þið hafið tök á.. Við ætlum okkur að fara áfram í 16 liða úrslit í meistaradeild evrópu kvenna. :)

Annars langaði mig bara að þakka fyrir gott samstarf.

kv Rakel 

» 0 hafa sagt sína skoðun

19.09.2011 21:00:54 / Ragga

Uppskeruhátið Vals

Fótbolti í Val

Uppskeruhátíð yngri flokka í Val

 

Uppskeruhátíð yngri flokkanna í fótbolta verður haldin í hátíðarsal Vodafone hallarinnar sunnudaginn 25. september kl.13:30. Þar verður uppskera sumarsins tíunduð og viðurkenningar veittar fyrir tímabilið 2010-2011. Það verður því engin æfing en allir eiga að mæta í valsgalla eða treygju :)

Að lokinni afhendingu viðurkenninga býður félagið upp á safa og kaffi fyrir alla gesti. Iðkendur eru beðnir um að koma með köku/brauðmeti á hlaðborð.

Kl. 16 hefst svo leikur Vals og Stjörnunnar í Garðabæ í Pepsi-deild karla og erum við að kanna áhuga á að vera með strætóferðir á leikinn að lokinni uppskeruhátíð.

Við hvetjum alla iðkendur til að mæta í æfingagalla Vals eða öðrum rauðum fatnaði. Við hvetjum einnig foreldra til að mæta og fagna uppskerunni með börnum sínum.

 

Með Valskveðju

Uppskeruhátíðarnefnd


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.09.2011 14:36:52 / Ragga

8 flokkur drengja og Stúlkna

Núna í næstu viku tekur 8 flokkur stúlkna til starfa og kemur nýr þjálfara þar inn sem heitir Kristín. Þær munu æfa í sal 1 í stóra sal kl 16:40 á þriðjudaginn nk.  Strákarnir verða í sal 2 á sama tíma. Eg, Villimey og Margrét munum áfram vera með strákana alla vegna út þennan mánuð.

þannig að þeir sem eru að byrja í fyrsta skipti inni þá eru krakkarnir í strigaskóm,stuttbuxum og bol á æfingu.

kv Rakel

» 0 hafa sagt sína skoðun

15.08.2011 21:53:17 / Ragga

Arion Bankamótið

Sælir foreldrar,

takk fyrir mótið. Okkur þjálfurunum fannst mjög gaman og krakkarnir stóðu sig mjög vel.

Á heimasíðu Arion Banka er hægt að finna myndir frá mótinu. Þið getið kíkt á þær hér:   http://www.arionbanki.is/?pageid=6882

kv Rakel

» 1 hafa sagt sína skoðun

12.08.2011 20:30:13 / Ragga

Mæting á morgun

lið nr 1 mætir ekki seinna en hálf 11. Fyrsti leikur er 11.   Lið nr 2 mætir ekki seinna en 12:30..fyrsti leikur er kl 13.

Það er að sjálfsögðu mæting í víkina..fossvoginum :)

Koma með 2000 kr. Sjáumst hress :)

kv Rakel

p.s bílastæði eru af skornum skammti en hægt er að leggja hjá fossvogsskóla.  Um að gera að mæta tímanlega.  Þetta er 5 min gangur frá fossvogsskóla

» 0 hafa sagt sína skoðun

11.08.2011 13:14:01 / Ragga

Arion Bankamót Víkings næstu helgi

Það kostar 2000 kr á haus og þið komið bara með peningin á laugardaginn.

Hér eru liðin og leikjaplanið:

Lið 1: Doddi, Alexander, Dagur, Baldur og Hilmar, Tómas Már,og Róbert Skúli.

Lið 2: Jónas Orri, Ari Páll, Ástrós Lilja, Thomas Benedikt, Selma Dís, Selma og Hilmar.

     

Valur 1 />

Tími />

Völlur />

Mótherjar />

11:00‐11:08 />

Mikki Mús />

Breiðablik 1 />

11:20‐11:28 />

Georg Gírlausi />

Víkingur 1 />

11:40‐11:48 />

Georg Gírlausi />

Breiðablik 2 />

12:00‐12:08 />

Georg Gírlausi />

FH 1 />

12:20‐12:28 />

Georg Gírlausi />

Valur 1?? />

  

 

Valur 2 />

Tími />

völlur />

mótherjar />

13:00‐13:08 />

Guffi />

Grótta 2 />

13:20‐13:28 />

Mikki Mús />

Breiðablik 7 />

13:40‐13:48 />

Georg Gírlausi />

Stjarnan 2 />

14:00‐14:08 />

Guffi />

Þróttur 4 />

14:20‐14:28 />

Mikki Mús />

FH 3 />

      

» 2 hafa sagt sína skoðun

02.08.2011 13:09:10 / Ragga

Arion Bankamót Víkings

laugardaginn 13 ágúst tökum við þátt í Arionbanka móti Vikings.

við erum með 2 lið og nú er skráning fyrir þá sem ætla að vera með.

endilega skrifið nafn í comments. :)

kv Rakel

p.s sjáumst svo á fimmtudaginn kl 16:30 úti á gervigrasi. :)


» 12 hafa sagt sína skoðun

01.07.2011 12:02:27 / Ragga

KSÍ frí

Ksí gefur út frí daga þar sem engar æfingar eða leiki eru á þessu tímabili.  Þetta tímabil er 17 júlí - 3 ágúst.  Síðasta æfing fyrir sumar frí er því á fimmtudeginum 14 júlí og fysta æfing eftir frí er því fimmtudaginn 4 ágúst.

kv Rakel

» 0 hafa sagt sína skoðun

10.06.2011 09:26:39 / Ragga

Arion Bankamót Víkings

ég hef skráð 3 lið í Arionmót viking sem fram fer laugardaginn 13 ágúst.  Hvert lið spilar 4. 12 mínútna leiki innan 3 klst ramma.  Þátttökugjald er 2000 kr á haus og er innifalið í því disney glaðningur, verðlaunapeningur, og hamborgaramáltíð að hætti grillhússins.

skráning fer fram á þessari síðu þegar nær dregur. :)

Kv Rakel

» 0 hafa sagt sína skoðun

05.06.2011 07:59:48 / Ragga

Sumartímar

Sælir foreldrar,

Sumartímarnir taka gildi á mánudaginn nk.  Þá æfum við framvegis úti á grasi  á þriðjudögum og fimtudögum kl 16:20-17:20.   Þá er mikilvægt að vera klæddur eftir veðri.


Kv Rakel

» 0 hafa sagt sína skoðun

05.06.2011 07:43:22 / Ragga

Myndir frá Vís mótinu

sælir foreldrar..myndir frá vís mótinu siðustu helgi eru hér:
  http://www.flickr.com/photos/vis_hf/sets/72157626724626693/

kv Rakel

» 0 hafa sagt sína skoðun

28.05.2011 20:56:49 / Ragga

æfing á morgun sunnudaginn 29. júní


Það hefur verið venjan að gefa frí daginn efti rmót. Það er því frí á morgun sunnudag.  


vill svo þakka fyrir frábært mót. Strákarnir stóður sig allir rosalega vel og það var gaman að horfa á þá.

kv Rakel,, Margrét og Villimey.

» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5
Heimsóknir
Í dag:  10  Alls: 28139
Klukkan